Málfar...

LENTI í hjartastoppi ???

Ég held það sé nú betri leið til að orða þetta..


mbl.is Braust inn í banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undrablogg

Já það er rétt!

Undur og stórmerki hafa átt sér stað og ég hef bloggað! Geri aðrir betur

Ástæðan er engin.

Ég sit í slopp með hanklæði á hausnum að sötra kaffi og bíð eftir að klukkan verði 12 svo hún Ása mín geti náð í mig og lagt land undir fót. Ég hef hugsað mér að yfirgefa tímabundið gæludýrið mitt (Þórhall) í Reykjavík og kíkja á Hornafjörð til familíunnar. Í tilefni Hornafjarðarferðar minnar mun Ása keyra mér á Selfoss þar sem Kjartan Dýri tekur við og brunar með mig austur á Hornafjörð þar sem ég mun, ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum fagna 100 ára afmæli langa-ömmu minnar heitinnar. Ég held að þetta muni verða hið fróðlegasta samkoma og mikill fögnuður Smile

 Í kvöld verður það samt fyrst á dagskrá þegar ég mæti á svæðið að finna mér sjónvarp með stöð2 svo ég geti nú fylgst með henni Hröfnu minni í Idol. Stúlkan búin að standa sig eins og hetja og er komin í 2ja manna úrslit sem haldin verða í kvöld. Spennandi! W00t

Þar sem ég hef haft hug á að blogga aftur síðar ætla ég ekki að æla útúr mér öllu fréttnæmu úr lífi mínu. Enda væri það langt og leiðinlegt blogg. Svo ég held ég láti bara kyrrt liggja hér og óski öllum góðrar helgar. Kissing

Kv. Védís - Leyndardómsfulla Whistling


Úps!!

Ég bara gleymdi að ég ætti þessa bloggsíðu :D

sorry maður ;)


Nei !!

Þess vegna halda allir að sinfónían sem ég samdi sem er þögn í 2 mínútur og 14 sek. sé eftir John Cage !! Það hlaut eitthvað að vera...

 

kv. Védís - svefngEngillHalo


mbl.is Bara 631 ár eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandróóóóó

Varð að deila hérna með dyggum lesendum mínum vandræðalegri uppsetningu á blaðsíðu dánafregna þar sem troðið var inn frétt á sömu blaðsíðu sem mér finnst innihalda afskaplega óheppilega fyrirsögn.

 

 

Zorpia Photo Sharing: Free Unlimited Storage & Bandwidth

 

Lengi lifi Fréttablaðið

 

Kv. Védís - Morgunsundkona W00t


Fyrirsagnalausa bloggið

Góðann dag.

 Sökum andvöku hef ég ákveðið í að nota þennan annars ónýtta tíma í að blogga og vona ég að það muni njóta einhverrar hylli.

 Til að byrja með vil ég blóta kvefinu sem ég er með og bölva horinu sem lekur viðstöðulaust úr nefinu á mér. Kunni einhverjir góð heimilsráð til að losa stíflur og stöðva nefrennsli þá mun ég með glöðu geði taka við þeim upplýsingum. Ráðleggingar skrifist í Athugasemdir hér fyrir neðan.

En eins og kannski einhverjir hafa tekið eftir ríkir kreppuástand í landinu, þ.e. Íslandi. Og hafa brjálæðingar staðið fyrir skipulegum mótmælum núna í einhverjar vikur með mis mikilli mætingu og undirtektum. Komu menn saman nú síðast í gær til að mótmæla og voru slegin öll aðsóknarmet og talað er um að slík mótmæli hafi ekki verið síðustu 60 árin. Ég gerði mér ferð niður á Austurvöll til að svala minni miklu forvitni um hvernig ástandið væri og kom þar í hálfgerðann "carnival" fíling, þar sem fólk barði á trommur, potta og ýmis áhöld og sönglaði "vanhæf ríkisstjórn" í takt við trommurnar. Fljótlega eftir að ég kom tók ég eftir fólki sem var að sveifla sér í jólatrénu á Austurvelli og aðrir að toga í vírana sem héldu því og tókst þeim að rífa niður tréð sem var svo um leið tekið og borið á brennu sem var búið að gera þarna fyrir framan Alþyngishúsið. Öll mín eftirsjá vegna missis á 13.brennum í ár var fyrir bý þegar ég stóð þarna og sá ég mest eftir að hafa ekki tekið með mér stjörnuljós.

Fólk var svo berandi dýnur, dekk og jafnvel bekki sem það hafði tekið á Austurvelli á bálið við mikinn fögnuð viðstandenda og tjáði mér það maður sem ég þekki að hann væri að skipta um eldhússinnréttingu heima hjá sér og hefði dröslað þeirri gömlu á brennuna fyrr um kvöldið LoL

Ég stóð svo þarna og dillaði mér í takt við bumbusláttinn í ca. 2 klukkustundir, eða þar til ég varð fyrir eggi sem ég send föst við að löggurnar hafi kastað í mig og ég þurfti að fara úr jakkanum. Það var kalt svo nebbinn fór í gang og ég lét mig hverfa heim á leið.

Ég hef nú ekki frá meiru merkilegu að segja núna svo ég læt þetta gott heita og þakka lesturinn. Ég vil svo enn og aftur minna á að þeir sem voru með húsráð við nefrennsli og stíflum gætu skrifað þau hér í Athugasemdir.

Takk fyrir mig

-Védís mótmælaáhorfandi Bandit


Viðvörun

Ég mun blogga á næstu dögum

Lygasögur og IKEAferð

Góðann dag

Ég vil byrja á að minnast á hversu góður þessi dagur virðist ætla að verða. Ég veit ekki af hverju, en kaffið mitt var það gott að restin að deginum getur ekki klikkað.

Núna stendur yfir hjá mér átak þar sem ég stefni af að ná af mér kærastakílóunum... þ.e. þessum 5 sem komu eftir að ég byrjaði með Þórhalli. (Þetta eru ekki persónuárásir á þig Þórhallur minn svo ekki skipta um lás á meðan ég er í vinnunni) - Og þess vegna er ég að reyna að hreyfa mig reglulega núna.

Það byrjaði með göngutúr í Elliðárdalnum þar sem ég dró Krúsilíusinn með mér út að labba. Ég sjálf hafði aldrei, fyrir þennann dag verið svo fræg að koma í þennann Elliðárdal sem allir tala um. Svo við settumst uppí bílinn og keyrðum þangað......já það er rétt, við keyrðum til að labba...og nei það er ekkert á bakvið þetta, það er engin bruggverksmjiðja þarna sem enginn veit að.

En allavega þá komum við í Elliðárdalinn og byrjuðum að rölta þarna um og mér líkaði bara vel. Maður kom strax inní skóg og var í algjörum friði þarna í miðri borginni. En auðvitað þurfti elskan mín að ljúga að mér....og spann upp þessar sögur um fólk sem hafði horfið í Elliðárdalum..bara farið út að labba eða skokka þarna og aldrei sést aftur..............aumingja saklausa ég trúði hverju einasta orði sem hann laug að mér, haldandi það að verandi í sambandi með þessum aula gæti ég treyst honum algjörlega Smile  Ég komst svo að því þegar ég var farin að horfa verulega í kringum mig til að leita að skúmaskotum þar sem óprúttnir náungar læju í leyni og biðu þess að nema mig á brott, gætu falið sig, að þetta væru lygar og ég væri bjáni að trúa þessu.

Takk Þórhallur!

Þessi ferð endaði samt vel og hver veit nema ég fari aftur einhverntíma í skóginn ógurlega!

 

En í titli bloggsins er vísað í ferð í IKEA sem var farið. Hann sleppti því að ljúga mig uppfulla af hryllingssögum þar enda lofaði ég honum pulsu yrði hann góður.

Hins vegar fann ég þar drauma sófann minn....tungusófi úr hvítu leðri..ekki of harður og ekki of mjúkur...fullkominn... og mér fannst hann vera á raunhæfu verði! 160þús er ekki teljandi verð fyrir slíkann grip! þangað til ég komst að því að tungan á sófanum var ekki innifalin í þessu verði og kostaði 60þús í viðbót þakka þér fyrir!

Mér finnst það einmitt fyndið í IKEA að allir hlutir eru seldir í pörtum. Sófinn en tungan sér. Lampi en perustæðið sér o.s.frv. Heppilegt fyrir þá sem eru með skreytiþörf. Langar að hafa lampa þarna en vilt ekki eyða of miklu í hann.... kaupir bara lampann en sleppir perustæðinu og snúrunni og plantar svo lampanum stolt á sinn stað og brosir meðan fólk dáist að því hvað þú ert dugleg að fela snúrurnar.

En þessi IKEAferð stefndi í að enda vel. Við fundum ruslafötu sem okkur vantaði í eldhúsið, eitthvað rugl til að hengja upp í svefnherbergið og setja föt í, (Þórhalli bráðvantaði svoleiðis) slopp fyrir mig, sem ég elska! Ég ríf mig úr fötunum þegar ég kem heim til að geta farið í sloppinn minn, og svo loks skóhilluna, eina hlutinn sem við ætluðum að kaupa þarna.

Við borguðum, ekkert verð eins og IKEA er best þekkt fyrir, Þórhallur fékk pulsuna sína og við fórum. Svo þegar heim var komið komumst við að því að fjandans skóhillan er beygluð svo við þurfum að gera okkur aðra ferð þarna uppeftir og sækja nýja. En það er þess virði því þessi skóhilla er það eina sem fær sambýlismann minn til að taka ekki alla skóna mína og henda þeim inní geymslu. Samkvæmt honum þarf enginn svona marga skó...

Prufaðu að vera ég!

 

En ég ætla að láta þetta nægja í dag og bið ykkur að lifa heil og einnig að muna að aldrei skal góð saga líða fyrir sannleikann.

 

-Védís


Bannerfærslan

Góðann dag!

Ég vildi nota tækifærið og óska sjálfri mér til hamingju með þennann glænýja banner sem ég var að dunda mér við að búa til og klessa á síðuna !

Ljóðið er búið að vera fast í hausnum á mér í nokkra mánuði og fær þess vegna að tróna á toppi bloggsíðunnar minnar.

Þess má hins vegar til gamans geta að vísan er ekki um Geir H. Haarde og er heldur ekki um bæinn Lækjarbakka...sé hann til. Heldur er þetta um húðlatann mann sem er kallaður Geir og liggur á lækjarbakka (þ.e. bakka við læk) og nennir ekki að snúa sér til að drekka úr læknum og endar á að drepast úr þorsta.

Til hamingju

 

Svo datt mér líka í hug um daginn þar sem ég vinn á veitingarstað/bar hversu mikil snilld væri að geta slökkt á vatninu sem kemur úr gosdælunum og blandast saman við gosið. Ég hef nefnilega oftar en ekki fengið að heyra í fólki sem vill enga bölvaða klaka í gosið sitt því það sé nógu vatnsblandað fyrir.

Þetta er bara alls ekki satt !

 Ég hef sjálf smakkað viðbjóðinn sem kemur úr dælunni óvatnsblandaður og hann er skal ég segja þér ekki hollur!! Er fluttur til landsins í "Bio Hazzard" merktum gámum... eða svo er mér sagt..

Ég hefði allavega ekkert á móti að lækka rostann í þessum kókséníum sem vaða útum allt úthúðandi klökum...

 

Kv. Védís

Fyrverandi tilvonandi ninja Ninja


Bloggið mitt

Halló halló

 

Nú hef ég ákveðið að gera enn eina bloggtilraunina.

Ég tel að líf mitt sé nógu spennandi og skemmtilegt að það sé þess virði að blogga um Smile

 

Ég tel ekki þörf á að kynna mig...geri ráð fyrir því að þeir sem lesi þetta blogg séu mér kunnugir.

 

Allavega þá er fyrsta mál á dagskrá áramótin sem voru með eindæmum leiðinleg í þetta skiptið.

Ég borðaði lamb heima hjá mömmu Þórhalls (sem var reyndar ekkert leiðinlegt) og var með þeim fram yfir miðnætti. Við horfðum á skaupið sem var mjög mjög leiðinlegt...... ég hló að tvennu og það var facebook atriðið og svo gas-löggan sem er alltaf fyndin Smile

Eftir miðnætti sprengdum við svo rakettuna okkar sem var einskis virði Wink og sú var stór og flott! síðan fórum við í party í Grafarvogi.....þar sem meðal aldurinn var um 40 og ef ég sagði einhverjum hvað ég væri gömul fékk ég fyrirlestur um börnin þeirra sem voru jafngömul mér eða eldri...

Um 5 laumaðist ég svo heim til mín, miður mín eftir illa heppnað party og skreið uppí rúm.....

Síðan er þetta ár bara búið að byrja heldur dapurlega!

En ég er samt ekkert að væla..aðeins að kveina bara Wink þetta er ekki alsæmt þar sem árið getur varla versnað úr þessu!

kv. Védíz


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband